[22:03]
Björn Bjarnason :
Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að tefja fyrir afgreiðslu þessa mikilvæga máls. Ég fagna því að samstaða hefur náðst í hv. samgn. um þær tillögur sem hér liggja fyrir og vil þakka nefndinni fyrir gott starf, sérstaklega formanni hennar fyrir það hvernig hann hefur haldið á málinu og komið þessu viðkvæma máli í það horf sem við okkur blasir og náðst hefur víðtæk samstaða um.
Ég fagna því sérstaklega sem fram kemur í brtt. nefndarinnar og lýtur að því að menn geti stundað akstur til 75 ára aldurs að uppfylltum þeim skilyrðum sem getið er í brtt. nefndarinnar og tel að með þessu sé komið til móts við okkur sem höfum viljað hrófla við þessu ákvæði og að nefndin hafi staðið þannig að því máli að frá mínum bæjardyrum séð er það alveg fullnægjandi og mun ég heils hugar standa að því að samþykkja þetta frv.
Varðandi brtt. nefndarinnar að öðru leyti vil ég aðeins geta þess sem kemur fram í 3. mgr. 7. gr. þar sem mælt er fyrir um það að ráðherra sé heimilt að fela félögum bifreiðastjóra þar sem meiri hluti bifreiðastjóra á svæðinu eru félagar að annast framkvæmd á veitingu undanþága í samráði við umsjónarnefnd
að hvetja hæstv. ráðherra til að huga vel að samkeppnisreglum og þeim reglum sem settar hafa verið um samkeppni og stöðu félaga þegar hann beitir þessari heimild sinni þannig að ekki komi til frekari ágreinings um þessi mál. Það hefur verið nóg að gert vegna hinna gölluðu laga sem sett voru árið 1989 og hafa leitt til málaferla fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu eins og við vitum. Ég tel mjög brýnt að Alþingi afgreiði þetta mál og þau mál sem því tengjast nú fyrir þinglok því eins og kom fram í 1. umr. málsins standa Íslendingar illa að vígi í Evrópuráðinu fyrir það hve dregist hefur að koma málum í það horf sem samrýmist dómi Mannréttindadómstóls Evrópu og við munum ljúka því máli með farsællega og getað staðið rétt frammi fyrir samaðilum okkar að Evrópuráðinu ef við samþykkjum frv. nú með þeim hætti sem það liggur fyrir.