Húsnæðisstofnun ríkisins

106. fundur
Laugardaginn 25. febrúar 1995, kl. 03:03:14 (5096)


[03:03]
     Frsm. félmn. (Gísli S. Einarsson) :
    Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. frá félmn. á þskj. 851 um frv. til laga um breyting á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 97/1993, sbr. lög nr. 12/1994. Nefndin leggur til eftirfarandi breytingar á frv.:
    1. Lögð er til breyting við 4. gr. að verkalýðsfélög hafi áfram fulltrúa í húsnæðisnefnd og að formaður nefndarinnar verði kjörinn af sveitarstjórn. Með þessu móti er komið til móts við hugmyndir um að auka vægi sveitarstjórna í húsnæðisnefnd en um leið tryggð þátttaka verkalýðsfélaga í nefndinni svo sem verið hefur.
    2. Lagt er til að 6. gr. verði breytt þannig að kveðið verði á um að ábyrgð á úthlutun félagslegra íbúða á vegum sveitarfélags til einstaklinga sé í höndum húsnæðisnefndar.
    3. Á 9. gr. er lögð til sú breyting að fallið verði frá því að festa í lög heimild húsnæðismálastjórnar að færa lán milli lánaflokka. Gert er ráð fyrir óbreyttri framkvæmd þar sem tilfærsla milli lánaflokka hefur verið heimiluð í undantekningartilvikum.
    4. Í 25. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir að vextir, sem hefðu verið hækkaðir með tilliti til tekna, gætu lækkað ef tekjur færu á ný undir tekjumörk. Lögð er til breyting sem felur í sér nýja tilhögun á vaxtabreytingum hjá einstaklingum vegna tekna en hún felur í sér að færri sæta vaxtahækkun en nú er.
    5. Eru lagðar til breytingar á 26. gr. sem fela í sér smávægilegar lagfæringar, en í þeim breytingum felast ekki efnisbreytingar.
    Nefndin mælir með að frv. verði samþykkt með þessum breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þskj. sem er nr. 852. Undir þetta rita með fyrirvara hv. þm. Jón Helgason, Guðrún J. Halldórsdóttir, Jón Kristjánsson, Kristinn H. Gunnarsson. Aðrir undirrita nál. án fyrirvara.
    Ég mælist til, herra forseti, að þetta mál fari hefðbundnar leiðir.