Áhafnir íslenskra kaupskipa

107. fundur
Laugardaginn 25. febrúar 1995, kl. 14:21:04 (5146)


    
     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti biður hv. þingmenn að reyna að halda ró sinni á þessum síðasta þingdegi. Af því að því var beint til forseta hvort þetta væri venjulegt, þá er það það eina sem forseti getur sagt að það er það ekki. Það er ekki venjulegt að vera með svona upplýsingar úr ræðustóli, en það er að sjálfsögðu á ábyrgð viðkomandi þingmanns og það verður hver og einn þingmaður að meta það við sig hvað honum þykir smekklegt í þeim efnum eða ekki.
    Hv. 14. þm. Reykv. óskar að bera af sér sakir og gerir hún það með því að byrja á því að segja hvaða sakir það eru sem hún vill bera af sér.