[14:22]
Sturla Böðvarsson :
Hæstv. forseti. Vegna þessarar snörpu umræðu sem hv. tveir þm. Reykv. hafa átt þá vil ég segja vegna þess sem kom fram í garð hv. 16. þm. Reykv. að ég sem á sæti í hv. samgn. fylgdist mjög vel með því hversu grannt hv. 16. þm. Reykv. Guðmundur Hallvarðsson fylgdist með því máli sem hér er til umfjöllunar og reyndi með ýmsum hætti að leggja sig fram um það að ásættanleg lausn fengist á þessu mikilvæga máli fyrir íslensku sjómannastéttina. Þess vegna finnst mér það í fyllsta máta óeðlilegt að hv. 16. þm. Reykv. Guðmundur Hallvarðsson sé gerður eitthvað tortryggilegur í þessari umræðu.
Þetta vildi ég að kæmi hér fram. Að öðru leyti lýsi ég stuðningi við það frv. sem hér er til umræðu.