Hitaveita Suðurnesja

107. fundur
Laugardaginn 25. febrúar 1995, kl. 14:51:33 (5158)

[14:51]
     Frsm. iðnn. (Sigríður A. Þórðardóttir) :
    Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nál. á iðnn. á þskj. 877, um frv. til laga um breyt. á lögum um Hitaveitu Suðurnesja, nr. 100 frá 1974, með síðari breytingum.
    Nefndin hefur fjallað um frv. sem felur í sér breytingar sem nauðsynlegt er að gera á lögum um Hitaveitu Suðurnesja í framhaldi af sameiningu Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafnahrepps í eitt sveitarfélag. Samkomulag er milli eigenda Hitaveitu Suðurnesja um þær breytingar er felast í frv. Nefndin mælir með samþykkt frv.