[18:14]
Jóhann Ársælsson :
Hæstv. forseti. Kannski er sá endi sem verður á viðskiptum hæstv. samgrh. við þingið við hæfi og í samræmi við það sem hefur verið að gerast á kjörtímabilinu. Það er satt að segja með algerum eindæmum hvernig menn hafa staðið að fjármögnun vegaframkvæmda allt kjörtímabilið. Það hefur verið kuklað í framkvæmdum, einstaka þingmenn stjórnarliða hafa fengið að ráða því hvaða framkvæmdir hafa verið dregnar fram fyrir aðrar og allt hefur þetta verið gert með þvílíkri hentistefnu að það nær út af fyrir sig ekki nokkurri átt. Hæstv. samgrh. á áreiðanlega met, og þó hefur áður verið bent á ýmislegt sem hafi misfarist í stjórnsýslunni, í því að hygla sínu kjördæmi og troða peningum í verkefni sem honum líkar. Þannig hefur þetta verið allt kjörtímabilið og endirinn sem við erum að sjá núna er í samræmi við þetta.
Í haust var talað um framkvæmdaátak á höfuðborgarsvæðinu og menn urðu sammála um það í þinginu að það ætti að gera þetta átak. En hvað gerist þá? Þá finna menn upp aðferð við að skipta því fé sem á að nota í fyrirhugað framkvæmdaátak á höfuðborgarsvæðinu og var kölluð höfðatöluregla. Og hvað gerðist með þeirri höfðatölureglu? Það gerðist það að hæstv. ráðherra náði 140--150 millj. kr. meira í sitt kjördæmi. Það var nákvæmlega það sem gerðist. Það hafði aldrei farið fram umræða um að það þyrfti sérstakt framkvæmdaátak þarna, sú umræða hafði aldrei farið fram. Það kann vel að vera að þetta átak hafi þurft og það komi í ljós við umræðu um það að á slíku átaki þurfi að halda, en sú umræða hefur ekki farið fram. Svo koma hv. frsm. og formaður hv. samgn. hér í morgun og eru að nudda minni hlutanum upp úr því að hann geti ekki tekið afstöðu til mála. Ég held að enginn þurfi að vera hissa á því þó að menn séu óánægðir með hvernig að þessum hlutum hefur verið staðið.
Framkvæmdaátakið sem hér er um að ræða átti að fjármagnast sérstaklega með tekjum af bensíngjaldi. Þegar maður fer að skoða síðan hvernig 3.500 millj. eru fengnar þá kemur í ljós að fyrst eru peningar teknir af almennu vegafé og færðir í ríkissjóð. Síðan eru peningar lánaðir úr ríkissjóði í Vegasjóð. Hér er um að ræða 695 millj. sem eru fyrst færðar í ríkissjóð og síðan eru 1.433 millj. lánaðar út úr ríkissjóði. Og á síðasta ári framkvæmdaáætlunarinnar er gert ráð fyrir endurgreiðslu upp á 217 millj. Ég er að nefna þetta vegna þess að þessar tölur eru settar svona í vegáætlunina til þess að ná upp heildartölunni 3.500 millj. Þetta fjármagn kemur ekki nýtt inn heldur eru búnar til tölur til þess að geta skipt stærri fjárhæð samkvæmt höfðatölureglunni og af því að höfðatölureglan gaf möguleika á því að fá aukið framkvæmdafé til vissra staða á landinu. Þetta snýst ekki um það að menn hafi verið á móti því að framkvæmdaátakið yrði á höfuðborgarsvæðinu, en ég tel ófært annað en menn sjái í gegnum það hvernig menn hafa staðið hér að málum.
Síðan hefur hæstv. ráðherra staðið í því að fá sína menn í kjördæmum, eins og hv. þm. Egil Jónsson o.fl., til þess að fallast á þessar tillögur sínar. Og hvað hefur verið gert til þess? Það hefur verið ýtt að þessum mönnum 50 millj. hér og þar, 20 millj. eða einhverjum öðrum upphæðum og þannig hafa menn fengið niðurstöðu. Þannig standa menn að málum á hv. Alþingi á bak við tjöldin. ( StG: Hverjir?) Hv. stjórnarliðar. Þeir standa að þessu með þvílíkum endemum að ég get ekki sagt annað en það. Ég ætla ekki að halda hér langa ræðu vegna þess að ég tel betri brag á því að við ljúkum þingstörfum og vegna þess að ég tel mikilvægt að vegáætlun verði samþykkt þannig að menn hafi það plagg til að vinna eftir, þá ætla ég ekki að fara að standa hér í ræðustól og segja frá þeim hlutum sem ég hefði svo gjarnan viljað gera. En ég get ekki annað en bent á það að þetta eru svo gersamlega óþolandi vinnubrögð og ég mun ekki geta staðið að því að samþykkja vegáætlun. Ég mun sitja hjá við afgreiðslu hennar. Við bárum fram tillögu til þess að rétta þetta pínulítið af sem hv. þm. Stefán Guðmundsson gerði grein fyrir að við drægjum núna til baka vegna þess að stjórnarliðar komu til móts við hana að nokkrum hluta. Aðrar brtt. munum við ekki flytja en það er ekki vegna þess að við sættum okkur við þessi vinnubrögð heldur vegna þess hvernig málinu er komið, það er komið í algert óefni. Og ég ætla sannarlega að vona það að enginn hæstv. ráðherra leggi í slíka göngu sem hæstv. samgrh. hefur gert á þessu kjörtímabili og enginn stjórnarmeirihluti láti sig hafa það að vinna með slíkum hætti og hæstv. ráðherra hefur gert og stjórnarliðar hafa látið sig hafa að samþykkja og rétta upp hendurnar með þessum vinnubrögðum sem við höfum séð í gegnum þetta kjörtímabil. Ég segi það enn og aftur: Það er vel við hæfi að menn endi það með þeim eindæmum sem við
höfum verið að sjá hérna síðustu dagana.