[20:13]
Kristín Ástgeirsdóttir :
Hæstv. forseti. Rétt áðan vorum við að greiða atkvæði um grunnskólafrv. og þar hafði náðst breið samstaða um lausn á því mikla deilumáli. Menn hafa lagt sig mjög í líma við það að ná samkomulagi á Alþingi um afgreiðslu mála. Nú sé ég það að á dagskrá þessa fundar er ekki tóbaksvarnafrv. sem hefur verið til umræðu og á dagskrá á undanförnum fundum. Ég vil lýsa yfir miklum vonbrigðum með það að ekki skuli vera meiningin að afgreiða þetta mál. Mér finnst að þetta frv. eigi að fá að koma til lýðræðislegrar afgreiðslu eins og önnur mál sem lögð eru fram á hinu háa Alþingi. Það er búið að afgreiða málið út úr nefnd og það er ljóst að þetta mál er því miður að stöðvast vegna andstöðu sem er gegn því. Ég harma þetta sérstaklega vegna þess að hér er um mikið þjóðþrifamál að ræða.
Ég vil geta þess að ég var á ráðstefnu í morgun þar sem verið var að fjalla um heilsu kvenna og það er alveg ljóst að hér á landi þarf að gera mikið átak í því að berjast gegn reykingum kvenna og draga verulega úr þeim vegna þess að nýjustu vísindarannsóknir segja það að nikótín sé miklu meira eitur en menn hafa trúað hingað til. Mér finnst það ábyrgðarhlutur að stoppa þetta mál á Alþingi.