Þinglausnir

109. fundur
Laugardaginn 25. febrúar 1995, kl. 21:24:47 (5246)


[21:24]
     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    ,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:
    Að ég, að tilskildu samþykkis Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 118. löggjafarþings, frá 25. febrúar 1995.
Gjört í Hafnarfirði, 25. febrúar 1995.

Vigdís Finnbogadóttir.

_____________
Davíð Oddsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

    Samkvæmt þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 118. löggjafarþings, er frestað.
    Leyfi ég mér að óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins, svo og landsmönnum öllum, allra heilla.