Forseti Íslands setur þingið

0. fundur
Laugardaginn 01. október 1994, kl. 14:02:27 (1)

     Forseti Íslands (Vigdís Finnbogadóttir) :
    Hinn 13. september 1994 var gefið út svofellt bréf:
    ,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:
    Ég hef ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til fundar laugardaginn 1. október 1994.
    Um leið og ég birti þetta, er öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur, og verður þá Alþingi sett, að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni, sem hefst kl. 13.30.
Gjört í Reykjavík, 13. september 1994.
Vigdís Finnbogadóttir.

_____________
Davíð Oddsson.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til fundar laugardaginn 1. október 1994.``
    Samkvæmt bréfi því sem ég nú hef lesið lýsi ég yfir því að Alþingi Íslendinga er sett. Bið ég yður að rísa úr sætum og minnast ættjarðarinnar.
    [Þingheimur stóð upp og forsætisráðherra, Davíð Oddsson, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.`` Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.]
    Samkvæmt 1. gr. þingskapa ber nú aldursforseta að stjórna fundi þar til kosning forseta Alþingis hefur farið fram og bið ég aldursforseta, Matthías Bjarnason, 1. þm. Vestf., að ganga til forsetastóls.