Pétur Bjarnason fyrir ÓÞÞ, Ragnar Elbergsson fyrir JÁ, Sigurður Hlöðvesson fyrir RA

0. fundur
Laugardaginn 01. október 1994, kl. 14:16:02 (4)

[14:16]
     Aldursforseti (Matthías Bjarnason) :
    Borist hafa eftirfarandi bréf. Hið fyrsta hljóðar svo:

    ,,Þar sem ég vegna veikinda get ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþm. Framsfl. í Vestf., Pétur Bjarnason fræðslustjóri, Ísafirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni. Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Ólafur Þ. Þórðarson, 2. þm. Vestf.``


    Pétur Bjarnason hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til starfa á þinginu.
    Annað bréfið hljóðar svo:

    ,,Þar sem Jóhann Ársælsson, 3. þm. Vesturl., getur ekki vegna veikinda sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varamaður Alþb. í Vesturl., Ragnar Elbergsson oddviti, Grundarfirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Ragnar Arnalds,

formaður þingflokks Alþýðubandalagsins.``

    Ragnar Elbergsson hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til starfa.
    Þriðja bréfið hljóðar svo:

    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varamaður Alþb. í Norðurl. v., Sigurður Hlöðvesson tæknifræðingur, Siglufirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Ragnar Arnalds, 3. þm. Norðurl. v.``


    Sigurður Hlöðvesson hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til starfa.