Kosning forseta skv. 1. mgr. 3. gr. þingskapa

1. fundur
Mánudaginn 03. október 1994, kl. 15:09:12 (10)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Ég þakka aldursforseta, hv. 2. þm. Norðurl. v., fyrir hlý orð í minn garð og góðar óskir. Jafnframt þakka ég það traust sem mér hefur verið sýnt með því að kjósa mig enn á ný sem forseta Alþingis. Það er einlæg von mín að takast megi gott samstarf og samvinna milli forseta og þingmanna allra á því þingi sem nú fer í hönd.