[12:16]
Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
Virðulegur forseti. Af viðbrögðum hv. þm. gæti maður haldið að hann væri í miðjum prófkjörsslag Sjálfstfl. hér í Reykjavík en svo mun nú ekki vera. En ég mun, virðulegur forseti, vera alveg tilbúinn að leggja fyrir hv. þm. öll þau gögn sem við framsóknarmenn lögðum fram í umræðum um skattamál á síðasta vetri. Ef ég man rétt þá eru þau í þingtíðindum og birtust með okkar minnihlutaáliti. Ég ítreka það sem ég sagði hér áður að það er mín skoðun að skynsamlegra sé að hafa skattstofnana einfalda og það séu fyllilega rök fyrir því að það sé gildur og virkur liður í þessu að viðhalda eðlilegu skatteftirliti. ( Gripið fram í: Það deilir enginn um það.) Það deilir enginn um það, segir hv. þm., en þá er hv. þm. kominn um leið í algjöra þversögn við ræðu sína sem hann hélt hér fyrir rúmri mínútu síðan, þegar hv. þm. sagði að það að fjölga skattþrepum í virðisaukaskatti hefði dregið úr skattsvikum. Ég vil biðja hv. þm. að vera meira sjálfum sér samkvæmur. Það geta verið áleitnar pólitískar spurningar hvort það eigi eins og í þessu tilfelli að hafa fleiri, tvö, þrjú eða fleiri skattþrep í virðisaukaskatti, þau hafa verið þrjú hér í dag. Það geta verið áleitnar pólitískar spurningar en út frá skattalegu sjónarmiði og sjónarmiði eftirlitsins þá er enginn vafi hvaða skattheimta er best.