[12:59]
Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir) (andsvar) :
Virðulegur forseti. Ég held að það væri mjög gott ef þetta væri þannig í öllum tilvikum að álykunum, sem Alþingi samþykkir, væru hrint í framkvæmd af framkvæmdarvaldinu. Við fáum árlega yfirlit yfir hvernig þingsályktunartillögur hafa verið framkvæmdar og er allur gangur á því. Ég hygg að sú ályktun, sem við erum að ræða um, taki mörgum ályktunum langt fram um það að hafa komist til framkvæmda og mætti rifja upp margar þáltill. sem Alþingi hefur samþykkt sem hafa ekki komist til framkvæmda. Þegar verið er að tala um hvort fjmrh. hafi akkúrat staðið gegn þessum atriðum, þá er ég ekki að halda því fram að þeir hafi gert það. Þeir hafa fengið frá mér þessar ábendingar um að það ætti að taka á þessum málum. Þeir hafa lagt sínar áherslur í skattamálum og skattsvikamálum, komið fram með ýmsar aðgerðir þó það séu ekki nákvæmlega þessar. Nú höfum við reynsluna af hvernig þessum ákvæðum varðandi sektirnar hefur verið beitt. Það má vel vera að menn hafi viljað fá einhverja frekari reynslu á því hvernig dómskerfið tæki á þessu máli vegna þess að það er ekki undir fjmrh. komið að því er varðar beitingu þessara sektarákvæða. Lagaákvæðin eru fyrir hendi. Þau segja að það megi beita allt að tífaldri þeirri fjárhæð sem undan er skotið. Mín gagnrýni hér beinist því fyrst og fremst að þeim aðilum sem sjá eiga um beitingu á
þessum heimildum og þeir hafa ekki gert það sem skyldi. Þess vegna segi ég: Ég tel rétt og tímabært að Alþingi taki á þessu og setji hér ákveðið refsilágmark.