Átak við að leggja jarðstrengi í stað loftlína

4. fundur
Fimmtudaginn 06. október 1994, kl. 13:48:44 (124)


[13:48]
     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Þar sem peningar eru nú afl þeirra hluta sem gera skal þá er auðvitað nauðsynlegt að jafnframt verði tryggt fjármagn til þessara verkefna.
    Hæstv. iðnrh. er ekki í þingsölum en ég hygg að starfandi iðnrh. sé hér staddur og hugsanlega upplýsir hann um það hvort þetta mál hefur verið rætt innan ríkisstjórnar og hvort vilyrði muni hugsanlega fást þar fyrir því að taka þetta inn á fjárlög. Ég vil, eins og hv. flm., leggja mikla áherslu á það að á þessu máli sé tekið. Það er orðið löngu tímabært.