[18:29]
Finnur Ingólfsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það hefur nú verið svo að ráðherrarnir hafa gumað af því hver á fætur öðrum að staðfesta ráðherra og stefnufesta ríkisstjórnarinnar sé hennar helsta einkenni. Nú kemur það dálítið á óvart þegar hæstv. menntmrh. segir það hér áðan að Lánasjóður íslenskra námsmanna sé orðinn það vel stæður að hann muni ekki mikið um að taka lán til að geta staðið við þær skuldbindingar sem honum hefur verið ætlað. Helsta röksemdin fyrir þeim harkalegu aðgerðum sem ríkisstjórnin greip til gagnvart námsmönnum með því að breyta í grundvallaratriðum lögunum um Lánasjóð ísl. námsmanna var sú að lánasjóðurinn væri gjaldþrota og hann gæti ekki starfað áfram. Og því þyrfti að skerða svona kjör stúdenta og því þyrfti að grípa til þessara róttæku aðgerða. Nú segir hins vegar hæstv. menntmrh. tveimur árum síðar, að staða lánasjóðsins sé orðin það góð að hann geti alveg tekið lán til þess að standa undir skuldbindingunum. Þetta er öll stefnufestan.