Tilkynning um dagskrá

7. fundur
Miðvikudaginn 12. október 1994, kl. 13:35:34 (261)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill láta þess getið að forseti og formenn þingflokka hafa rætt saman um þinghaldið fram undan í dag. Niðurstaða þess fundar varð sú að þessi þingfundur gæti staðið allt að til klukkan fimm ef á þarf að halda til framhaldsumræðu um fjárlagafrv. og mun því þingflokksfundum frestað sem því nemur.