Fjárlög 1995

7. fundur
Miðvikudaginn 12. október 1994, kl. 14:45:36 (272)


[14:45]
     Jón Helgason (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég skil skýringar hæstv. fjmrh. svo langt sem þær ná en ég spurði líka hvaða áhrif hæstv. fjmrh. teldi að þessi útboð hefðu á vexti og á vaxtaþróun og sölu á öðrum spariskírteinum. Er þá farið út í þetta án þess að vega það nokkuð eða meta hvaða áhrif það muni hafa?