Fjárlög 1995

7. fundur
Miðvikudaginn 12. október 1994, kl. 20:52:41 (306)


[20:52]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég hef ekki ætlað mér hér að munnhöggvast við fyrrv. fjmrh., hv. 8. þm. Reykn., ég benti einfaldlega á það að hv. þm. fylgdi þessari stefnu eftir sem ráðherra þegar hann var það og barðist fyrir því með kjafti og klóm og varð hinn versti ef nefndar voru aðrar leiðir. Þannig að ég var einungis að setja þetta í eilítið sögulegt samhengi í dag.