Atvinnuleysistryggingar

8. fundur
Fimmtudaginn 13. október 1994, kl. 12:00:01 (363)


[12:00]
     Guðrún J. Halldórsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég tek undir að ég held ekki að rétt sé að það sé óheftur aðgangur að þessu. Það þurfa að vera aðilar sem gætu veitt meðmæli eða ummæli sem gæfu tilefni til að viðkomandi fengju slíka möguleika. Ég er alveg sammála því. Ég velti því fyrir mér hvort það mundi ekki þurfa sérstakan aðila til þess sem til þess væri kvaddur á vegum þessara stofnana.
    Ég endurtek að mánuðirnir þurfa að vera níu en ekki átta.