[14:34]
Svavar Gestsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Kosturinn við það kerfi sem var við lýði þegar ég fór með þennan málaflokk er auðvitað augljós. Hann er sá að þá lofuðu menn bara því sem þeir gátu staðið við og það held ég að sé mjög mikilvægt atriði fyrir ráðherra húsnæðismála hverjir svo sem þeir eru. Jafnvel þó að loforðið sé um lítið fé þá er það betra ef menn standa við það en ef menn lofa miklu fé og geta ekki staðið við það af einhverjum ástæðum.
Varðandi 86-kerfið þá er málið einfaldlega þannig að ég man alveg eftir þessari skýrslu Ríkisendurskoðunar en hún þýddi ekki dauðadóm yfir kerfinu. Af hverju spáði Ríkisendurskoðun gjaldþroti? Af því að í kerfinu eins og það var var um að ræða sjálfvirk innstæðulaus loforð. Og ég hygg að ef menn hefðu haft pólitískt þrek til að höggva á þetta sjálfvirka samhengi og taka öðruvísi á málum, ef menn hefðu þorað að raða umsóknum í forgangsröð eftir þörfum, eftir tekjum og eftir aðstæðum fólks þá hefði verið hægt að una við þetta kerfi. En eins og það var þar sem öllum var lofað gulli og grænum skógum þá var að sjálfsögðu ekki hægt að standa við kerfi af þessum toga. Það er alveg augljóst mál það þurfti ekki einu sinni Ríkisendurskoðun til að segja manni það.