Tilkynning um utandagskrárumræðu

14. fundur
Þriðjudaginn 18. október 1994, kl. 13:33:53 (486)

    
     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir) :
    Þá er hér tilkynning um utandagskrárumræðu sem fer fram í dag kl. 3. Málshefjandi er hv. þm. Svavar Gestsson og beinir hann máli sínu til hæstv. menntmrh. Umræðan fer fram samkvæmt 53. gr. þingskapalaga og er gert ráð fyrir að hún vari í um eina klukkustund. Efni umræðunnar er málefni Ríkisútvarpsins í ljósi nýlegra atburða innan stofnunarinnar.