[13:42]
Ólafur Ragnar Grímsson :
Virðulegi forseti. Þá er skattalækkunarleikrit Sjálfstfl. að byrja á nýjan leik enda prófkjör í vændum og alþingiskosningar. Sjálfstfl. flutti hér á síðasta kjörtímabili margvíslegar tillögur um skattalækkanir, efndi enga þeirra. Og nú gerist það hér þegar Sjálfstfl. er búinn að hafa fjmrn. í þrjú ár að þá kemur þingmaður Sjálfstfl. og flytur þáltill. um afnám tvísköttunar. ( GHall: Ekki í fyrsta skiptið.) Hvers vegna skyldi þingmaðurinn flytja þáltill.? Jú, vegna þess að þá er alveg öruggt að það verður ekkert gert í málinu. Ef þingmanninum væri alvara þá mundi hann auðvitað flytja brtt. við skattalögin eða þau skattafrumvörp sem hér verða til umfjöllunar. Það gerir þingmaðurinn ekki. ( GHall: Talar sá sem reynsluna hefur.) Talar sá sem reynsluna hefur. Ég hef aldrei farið með blekkingar gagnvart þjóðinni í skattalækkunarmálum, hv. þm., aldrei gert það. Ég sagði það fyrir síðustu kosningar að það væri ekki svigrúm til skattalækkana. En Sjálfstfl., þar með talinn þessi hv. þm., söng það í prófkjörsbaráttunni og kosningabaráttunni að það væri mikið svigrúm til skattalækkana, meinti ekki neitt af því. Sjálfstfl. meinar heldur ekki neitt með þessari tillögu, það er alveg ljóst. Hann er bara að byrja skattalækkunarleikritið aftur hérna í þingsalnum af fullkomnu alvöruleysi.
Ég vil spyrja hv. þm. hvers vegna hann flytur ekki frv. um málið svo að hægt sé að kalla fram vilja þingsins í málinu? Þetta er bara áskorun á fjmrh. að leggja fram frv. Fjmrh. hefur boðað í fjárlagafrv. hvaða skattafrumvörp hann ætlar að leggja fram, það liggur alveg ljóst fyrir. Þar með er þetta ekki talið með. Var sú áætlun ekki samþykkt í þingflokki Sjálfstfl.? Ég vil spyrja hv. þm. að því. Þar með hefur hv. þm. samþykkt það að fjmrh. leggur ekki fram frv. um þetta atriði sem hann er núna að skora á fjmrh. að gera. Auðvitað er hægt að nota aðstöðu sína hér í þinginu til þess að leika sér með þessum hætti, en það hefur ekki verið venja að þingmenn úr flokki fjmrh. væru að leika sér með þessum hætti sem hv. þm. gerir hér án þess að gera tilkall til þess að viðkomandi fjmrh. sé þá í þingsalnum svo að hægt sé að ræða við hann. En það var auðvitað áberandi að hv. þm. Guðmundur Hallvarðsson og þeir tveir aðrir þingmenn Sjálfstfl. sem þetta flytja hafa greinilega engan áhuga á að ræða þetta við fjmrh. úr eigin flokki.
Ég vil spyrja hv. þm. í fyrsta lagi: Hvers vegna flytur hann ekki frv. um málið? Ég vil spyrja hann í öðru lagi: Hver var afstaða fjmrh., Friðriks Sophussonar, þegar þessi tillaga var rædd í þingflokki Sjálfstfl.? Í þriðja lagi vil ég spyrja: Styður þingflokkur Sjálfstfl. þessa tillögu, eða eru það bara þrír þingmenn Sjálfstfl. sem standa á bak við hana? Er hér einhver alvara á ferðinni þannig að hægt sé að taka málið þeim tökum að raunverulegur vilji sé á bak við þennan tillöguflutning?
Það kemur fram í greinargerðinni að þessi tvísköttun á lífeyrisgreiðslur var innleidd af Sjálfstfl. Hv. þm. gleymdi að segja það alveg skýrt að hún hefði verið innleidd af Sjálfstfl. Sjálfstfl. ber þess vegna meginábyrgð á því að þessi tvísköttun af lífeyrisgreiðslum var sett í löggjöfina. Ég man ekki betur en að allir þingmenn Sjálfstfl. á Alþingi þá greiddu atkvæði með því að slík tvísköttun af lífeyrisgreiðslum væri tekin upp. Það er þess vegna framlag Sjálfstfl. til lögbókarinnar að lífeyrisgreiðslur séu tvískattaðar. Það getur svo vel verið að Sjálfstfl. hafi ætlast til þess að við hinir sem tókum við fjmrn. færum að afnema þessi verk Sjálfstfl. Það má vel vera. En er það ekki til einum og mikils ætlast, hv. þm., að fjmrh. annarra flokka fari að afnema það sem Sjálfstfl. hefur komið á með þessum hætti? Þessi tvísköttun er þess vegna framlag Sjálfstfl. til íslenskra skattamála. Sjálfstfl. hefur haft þrjú ár til að kalla þetta til baka. Ég veit ekki til þess að fjmrh. Sjálfstfl. hafi nokkru sinni orðað það. Nú gerist það á síðasta þingi fyrir kosningar, nokkrum vikum fyrir prófkjör, að þetta leikrit er hafið hér í þingsalnum að flytja um þetta þáltill. Marklaus flutningur sem mun auðvitað engin áhrif hafa á raunveruleikann sem þingmaðurinn er að tala um.
Ég vona að hv. þm. svari þeim spurningum sem ég bar hér fram, en ég tók til máls vegna þess að mér leiðist að sitja enn einu sinni undir því að Sjálfstfl. sé að plata almenning. Þessi þingmaður Reykv. sé að plata Reykvíkinga með því að búa til einhverjar væntingar um skattalækkanir sem er svo ekki fylgt eftir með neinum hætti. Fyrir síðustu alþingiskosningar var gefið út prófkjörsblað hjá Sjálfstfl. í Reykjavík. Þar voru frambjóðendur í prófkjörinu, m.a. þeir þrír sem hér sitja í þingsalnum, látnir svara þeirri spurningu frá ungu fólki í Sjálfstfl. hvort þeir ætluðu að afnema þá skatta sem sú ríkisstjórn sem ég var fjmrh. í hafði komið á. Allir þessir þingmenn sem hér sitja lýstu því yfir að þeir ætluðu að afnema þessa skatta. ( IBA: Ég verð að leiðrétta einu sinni enn.) Ég sagði þrír hv. þm. hér í salnum. Það hefur ekki orðið vart við efndir á þessum loforðum. Forsrh. svaraði þessum spurningum með einföldu jái, hann ætlaði að afnema alla þessa skatta. Fjmrh. lýsti því yfir að hann ætlaði að afnema þá. Geir H. Haarde . . .
( Forseti (VS) : Hæstv. ráðherrar.)
Hæstv. ráðherrar já, hæstv. ráðherrar. Hv. þm. Geir H. Haarde var eini frambjóðandinn í þessu prófkjöri sem hafði kjark til að segja mjög skýrt að það væri ekki grundvöllur fyrir því að lækka þessa skatta. Það hef ég alltaf virt við hv. þm. Geir H. Haarde. En sá þingmaður sem þessa tillögu flytur og sá þingmaður Reykv. sem flytur tillöguna með honum, tóku hins vegar þátt í þessum blekkingaleik í prófkjöri Sjálfstfl. fyrir fjórum árum síðan.