Skipan stjórna heilsugæslustöðva

15. fundur
Miðvikudaginn 19. október 1994, kl. 13:48:20 (566)

[13:48]
     Jón Kristjánsson :
    Virðulegi forseti. Ég tel að þær upplýsingar hafi komið fram í svari hæstv. heilbrrh. að hér sé ekki um eðlileg vinnubrögð að ræða vegna þess að það hefur verið venjan hingað til að heilbrrh. skipaði alla stjórnina með bréfi samkvæmt tilnefningum. Það er því mjög einkennilegt að skipa stjórnir þessara stofnana í áföngum. Hæstv. ráðherra svaraði reyndar ekki síðari hluta spurningar minnar hvort þetta væri eðlileg stjórnsýsla en ég tel að þær upplýsingar sem hér hafa verið bornar á borð svari því.