Viðskiptaráðherra (Sighvatur Björgvinsson) :
Virðulegi forseti. Ef ég hefði átt von á þessari fsp. hefði ég getað komið með samanburð á vöxtum í íslenska bankakerfinu og bankakerfi nálægra landa. Þar kemur það fram að þó að mönnum finnist vextir á skammtímaútlánum eins og víxillánum háir hér þá eru þeir síst hærri hér en í flestum nágrannalöndum í kringum okkur. Vextir á slíkum lánum, svona skammtímaviðskiptalánum, eru alls staðar mjög háir og ekkert hærri hér en í grannlöndunum.
Ég vil aðeins upplýsa í sambandi við vaxtamuninn sem hér var imprað á að á síðustu missirum hefur vaxtamunur bankanna lækkað um helming. Hann var fyrir örfáum mánuðum eða tveimur og hálfu missiri síðan, um 6% en er nú 3% þannig að bankarnir hafa verið að draga mjög úr sínum vaxtamun. Hvers vegna er hann þó svona hár? Ástæðan er að sjálfsögðu þau áföll sem bankarnir hafa orðið fyrir sem þeir verða að bera uppi af sínu aflafé og það má segja að menn hafi látið þá sem hafa getað greitt vexti borga fyrir þá sem ekki hafa getað staðið í skilum með þessum hætti. Það mætti orða það svo.
Ég mun eiga viðræður við Seðlabankann næsta föstudag út af stöðu bankakerfisins og möguleikum þess að draga enn úr vaxtakröfum í okkar þjóðfélagi. Ég vona að eftir þann fund sé hægt að fylgja enn frekar fram þeim áformum sem ríkisstjórnin hefur verið með um að lækka vexti á Íslandi og samræma vaxtagreiðslur því sem gerist og gengur í löndunum í kringum okkur. Ég vil aðeins taka fram að eins og nú standa sakir þá eru vextir á Íslandi samanborið við vaxtakjör í öllum nálægum löndum mjög lágir. Það eru sennilega ekki nema Þýskaland og Bandaríkin sem bjóða upp á lægri vexti en Íslendingar um þessar mundir.