Ofbeldisefni í myndmiðlum

15. fundur
Miðvikudaginn 19. október 1994, kl. 14:03:05 (577)

[14:03]
     Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
    Frú forseti. Það verður að vera alveg skýrt að framkvæmd laga á sviði menntmrn. er á ábyrgð þess. Hins vegar er það í verkahring lögreglu og eftir atvikum dómstóla að taka á málum sem upp koma. Ég fullyrði að í öllum efnum hafa lögregluyfirvöld og dómstólar tekið á viðfangsefnum af þessu tagi sem til þeirra hafa borist í samræmi við lög og reglur þar að lútandi.