Reglugerð um jöfnunargjöld á útfluttar landbúnaðarvörur

15. fundur
Miðvikudaginn 19. október 1994, kl. 14:06:27 (581)

[14:06]
     Valgerður Sverrisdóttir :
    Hæstv. forseti. Ég er ekki alveg ánægð með þessi svör, en þó gefa þau mér þá von að það sé í alvöru verið að vinna að málinu í ráðuneytinu. Ég hef þó óljósan grun um að það sé ósamstaða um það innan ríkisstjórnarinnar að þessi reglugerð verði gefin út og það sé þá sennilega hæstv. utanrrh. eða jafnvel hæstv. fjmrh., sem situr á málinu. Ég vil því að hæstv. landbrh. komi hér upp og staðfesti að það sé samstaða um það innan ríkisstjórnarinnar að þessi reglugerð muni líta dagsins ljós nú innan tíðar.