[15:58]
Kristín Ástgeirsdóttir (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég get fullyrt það eftir samtal við starfsmenn við sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum að þeir hafa enn þá ekki fengið eyri greiddan af þessu enda ekki að furða að þeir spyrji hvers konar meðferð þetta sé á almannafé. Eftir því sem ég best veit hefur þetta allt verið í innheimtu og það var samið við ríkið um frest til 26. okt. Viðræður hafa átt sér stað. En orð hæstv. fjmrh. skýra fyrir mér hvers vegna hér er um 20 millj. kr. upphæð að ræða því það er jafnvel talið að öll skuldin sé töluvert hærri. Þetta er sennilega hlutur ríkissjóðs en það kann að vera að sá hlutur sem bæjarsjóður Vestmannaeyja ber sé ekki inni í þessu dæmi.
Það sem ég var fyrst og fremst að vekja athygli á er auðvitað að það skuli dragast svona lengi að gera upp skuld af þessu tagi og hún skuli látin hlaða á sig dráttarvöxtum í næstum því heilt ár.