Samkomulag þingflokksformanna um mál á dagskrá

19. fundur
Miðvikudaginn 26. október 1994, kl. 13:35:45 (780)

     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Vegna þessara orða hv. 15. þm. Reykv. vill forseti geta þess að þessari dagskrá mun hafa verið haldið áfram í fullu samráði við þá hv. þm. og þá hv. þingflokksformenn sem hér voru í húsinu, auk þess sem þessi mál voru á dagskrá þannig að forseti telur ekki að hér hafi verið brotið á nokkurn hátt í bága við dagskrá fundarins.