Samkomulag þingflokksformanna um mál á dagskrá

19. fundur
Miðvikudaginn 26. október 1994, kl. 13:51:22 (791)


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Hv. 8. þm. Reykn. og hv. 9. þm. Reykn. hafa óskað eftir að ræða störf þingsins. Strangt tekið er tíminn búinn en forseti hyggst nú leyfa þessum tveim hv. þingmönnum að tala í trausti þess að þeir ljúki máli sínu á sem allra skemmstum tíma og hefur nú einn bæst í hópinn. Hv. 8. þm. Reykn. tekur til máls og forseti treystir því nú að hann stytti mál sitt.