[13:54]
Anna Ólafsdóttir Björnsson :
Virðulegi forseti. Erindi mitt hingað í stólinn er einfaldlega að biðja hæstv. forseta um að svara því og halda því til haga gagnvart öðrum fulltrúum í forsætisnefnd hvort það muni í framtíðinni verða staðið við það samkomulag sem gert er þannig að ekki komi upp slík staða aftur. Það vildi svo til að ég var hér á vaktinni út af einu því máli sem samkomulag var um að taka fyrir í gær en það var frv. til laga um takmörkun á ráðstöfun síldar til bræðslu. Það mál var síðan ekki tekið fyrir en önnur mál, sem ekki var samkomulag um að yrðu tekin fyrir, voru tekin í staðinn. Ef staðan hefði verið nákvæmlega öfug að það mál sem ég ætlaði hér að fylgjast með hefði verið tekið fyrir þrátt fyrir að samkomulag væri um annað, þá hefði ég verið mjög óánægð með að geta ekki treyst því að vita hvenær það mál væri tekið fyrir og það þó um þetta mál sé býsna gott samkomulag og þetta sé kannski ekki stórt mál. Þetta finnst mér alveg grundvallaratriði að það sé staðið við samkomulag, þá er ekkert því til fyrirstöðu af hálfu okkar kvennalistakvenna að vera hér við þau mál sem við þurfum miðað við það samkomulag sem gert var því að okkar þingflokksformaður kom mjög tryggilega skilaboðum á framfæri.