Takmörkun á ráðstöfun síldar til bræðslu

19. fundur
Miðvikudaginn 26. október 1994, kl. 15:34:24 (813)

[15:34]
     Ingibjörg Pálmadóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Þetta voru ekki útúrsnúningar af minni hálfu, ég vildi bara fá það skýrt fram hvort hann teldi það ekki mikilvægt að semja um þessa tolla á okkar mikilvægustu mörkuðum vegna þess að markaðshlutdeild okkar er lág varðandi síld. En í svari hans kom það fram að hann er ekki sammála hæstv. forsrh. í þessu máli og það vildi ég fá fram. Ég tel það mikilvægt og ég þakka honum fyrir það.