Takmörkun á ráðstöfun síldar til bræðslu

19. fundur
Miðvikudaginn 26. október 1994, kl. 15:48:11 (818)

[15:48]
     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar) :
    Frú forseti. Ég vil ítreka það að þau leyfi sem hér hafa verið veitt eru takmörkuð, þau eru gerð í tilraunaskyni og á grundvelli ráðgjafar frá Hafrannsóknastofnun og það hafa engar ákvarðanir verið teknar um að veita almennar heimildir í þessu skyni. Ég taldi rétt og eðlilegt að tilraunin yrði gerð með takmörkuðum fjölda leyfa.