Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
Nú hefst umræða utan dagskrár samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapalaga. Það er hv. 8. þm. Reykn., Ólafur Ragnar Grímsson, sem beðið hefur um umræðuna en efni hennar er staða félmrh. og ummæli hans um samskipti ráðuneytisins við Hafnarfjarðarbæ. Eins og hv. þingmönnum er kunnugt stendur umræðan í 30 mínútur og tekur þá til máls hv. 8. þm. Reykn.