[15:38]
Félagsmálaráðherra (Guðmundur Árni Stefánsson) :
Virðulegi forseti. Vegna þeirrar utandagskrárumræðu sem hér á sér stað vegna sjónvarpsumræðu í fyrrakvöld milli mín og bæjarstjórans í Hafnarfirði núv. þá vil ég taka af öll tvímæli í þeim efnum. Í þessum þætti sat ég sem fyrrv. bæjarstjóri í Hafnarfirði og ræddi tiltekin mál við núv. bæjarstjóra. Þau ætla ég ekki að gera hér að umtalsefni á hinu háa Alþingi. Hins vegar er látið að því liggja hér að skilja megi ákveðin ummæli mín í þessum þætti á þann veg að ég sem félmrh. hafi verið með viðvaranir í garð bæjarstjórans í Hafnarfirði eða dulbúnar hótanir eins og gefið hefur verið í skyn. Það var alls ekki. Það vil ég undirstrika rækilega. Vel má vera að einhverjir skilji orð mín á þann veg þegar textinn er lesinn en ég held að þeim sem horfðu á umræddan sjónvarpsþátt hafi ekki til hugar komið að þannig væri í pottinn búið. Enda var það svo ekki. Ekkert slíkt bjó að baki af minni hálfu.
Sem Hafnfirðingur og fyrrv. bæjarstjóri og raunar fyrrum samstarfsmaður núv. bæjarstjóra í Hafnarfirði í meiri hluta á árunum 1986--1990, þá vildi ég eingöngu koma þeirri ábendingu á framfæri við hann að í viðamiklu og umsvifamiklu starfi bæjarstjóra væri mikilvægt að horfa fram á við. Að gefnu tilefni í viðtalinu hins vegar bar á góma staða mín sem félmrh. og sem slíkur vildi ég undirstrika að þau mikilvægu samskiptamál ríkis og sveitarfélaga sem í farvatni eru og þyrfti að ræða. Til að taka af öll tvímæli þessarar umræðu vil ég undirstrika mjög ákveðið að ég er mikill áhugamaður um það að gott samstarf geti tekist við sveitarfélögin og ekki síst Hafnarfjörð um þann viðamikla verkefnatilflutning sem í undirbúningi er m.a. á vettvangi reynslusveitarfélaga, flutningi grunnskólans, húsaleigubætur o.fl. Mér er vissulega ljóst að vegna álitamála sem uppi eru vegna átaksverkefna sveitarfélaga og framhaldi á fjármögnun þeirra þarf að setja niður deilur. Ég hitti forsvarsmenn Sambands sveitarfélaga eftir helgi vegna þeirra mála.
Með öðrum orðum, virðulegi forseti, ég vil gott samstarf við bæjaryfirvöld í Hafnarfirði og forsvarsmenn annarra sveitarfélaga um þessi mikilvægu verkefni og trúi því að svo megi verða. Hafi einhver skilið orð mín í umræddum sjónvarpsþætti öðruvísi þá vona ég að með þessum orðum hafi sá misskiningur verið leiðréttur.