[15:46]
Kristinn H. Gunnarsson :
Virðulegi forseti. Það er að vonum að upp eru tekin málefni hæstv. félmrh. og þau ummæli sem hann hefur látið falla sem ráðherra, bæði síðustu daga og áður. Hann hefur iðulega að mínu mati í þeim ummælum gert sig alvarlega sekan um dómgreindarbrest, m.a. með því að blanda saman afskiptum sínum af sveitarstjórnarmálum í Hafnarfirði og stöðu sinni sem félmrh. Hann hefur svo að ég nefni tvennt annars vegar vegið ómaklega og algerlega að ófyrirsynju að löggiltum endurskoðendum með ásökunum í þeirra garð um að þeir lúti pólitískri forskrift. Slík ummæli eru þess eðlis að af hálfu yfirmanns sveitarstjórnarmála eru þau eitt og sér tilefni til þess að ráðherrann íhugi alvarlega að segja af sér án þess að verða hjálpað til þess.
Í öðru lagi hefur hann blandað saman afskiptum sínum sem bæjarstjóri og yfirmaður sveitarstjórnarmála með því að mæta á blaðamannafund til að verja gerðir fráfarandi meiri hluta Hafnarfjarðarbæjar og látið þar falla ummæli sem mér finnst að ekki eigi heima í þeirri stöðu sem hann gegnir nú.
Í þriðja lagi vil ég nefna til að almennt finnst mér viðhorf ráðherrans til valdsins og umgengni hans við það vera með þeim hætti að ekki samrýmist stöðu hans sem ráðherra og það er því miður af hans hálfu og reyndar fleiri ráðherra hér í þessum sal þannig farið með valdið að menn misbeita því alvarlega í þágu persónulegra hagsmuna eða sjónarmiða en ekki í þágu almannaheilla eins og þeim ber að gera. Mitt sjónarmið er í þessu tilviki, hæstv. félmrh., að honum ber að segja af sér og það fyrr en seinna.