[15:54]
Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
Hæstv. forseti. Eins og fram hefur komið hjá ýmsum þingmönnum þá hefði auðvitað verið skynsamlegra að leggja sumar þessara spurninga fyrir með þinglegum hætti þannig að tóm gæfist til þess að svara þeim í staðinn fyrir að hrúga inn tíu spurningum, eins og hér er gert, vitandi vits um að ógerningur er að koma að þeim öllum.
Varðandi Lífeyrissjóð bænda er það að segja að stjórn lífeyrissjóðsins hefur samið drög að frv. sem við höfum í landbn. beðið um viðræður við fjmrn. um, en það mál hefur verið rætt við það en ekki náðst niðurstaða fram að þessu.
Um tollígildi vegna GATT-tilboðs er það að segja að það var tekinn sá kostur að miða við tollskrána 1988 þar sem hún var samræmd og ekki gerlegt með sama hætti að nota eldri tollskrár. Þetta var garðyrkjubændum kunnugt og nú er í athugun hvort innflutningstölur séu eðlilegar eða afbrigðilegar og hvort unnt sé að koma við leiðréttingu ef nauðsyn krefur. Í sambandi við skuldbreytingar er litlu við það að bæta sem hv. þm. Pálmi Jónsson sagði áðan, en þar sem sú fyrirspurn laut að fjárhagsstöðu garðyrkjubænda og vegna ummæla hv. þm. Páls Péturssonar áðan, þá er rétt að taka það fram að þegar þessi ríkisstjórn var mynduð var búið að ganga frá cohesion-lista við Evrópubandalagið. Sá kostur var tekinn af síðustu ríkisstjórn að eiga enga fulltrúa, að landbrn. ætti enga fulltrúa þar sem málefni garðyrkjubænda voru rædd og er náttúrlega algerlega út í hött þegar þessi hv. þm. kemur hér upp hvað eftir annað til þess að reyna að láta skuggann af þeim umræðum falla á þá ríkisstjórn sem nú situr.
Í sambandi við kartöfluræktina get ég sagt það eitt, að auðvitað er það svo að þegar framleiðsla er mikil þá lækkar verðið. Nú keyrir úr hófi fram. Það er rétt að íslenskar kartöflur kostuðu fyrir norðan, í KEA-Nettó, 4 kr. kg. Það er eftirtektarvert að eins og nú standa sakir er við því að búast að kartöflubændur fái um 15 kr. fyrir hvert kg. Þetta eru að vísu óstaðfestar tölur en við kunnum ekki að fara nær því. En innkaupsverð á innfluttum kartöflum á sl. sumri var í kringum 40 kr. og við sjáum auðvitað á þessum tölum hvað er að gerast. Við sjáum að samkeppnin þarna hefur leitt þetta allt út í vitleysu og það er auðvitað óþolandi fyrir einstaka framleiðendur í þessari grein að keppa á markaði sem snýst með þessum hætti.