Glasafrjóvgun

22. fundur
Mánudaginn 31. október 1994, kl. 17:19:43 (945)


[17:19]
     Ingi Björn Albertsson :
    Hæstv. forseti. Mig langar að skjóta inn einni spurningu í þetta áhugaverða mál til ráðherra áður en hann svarar. Mig langar að vita hvort það sé um einhvers konar forgangsröðun að ræða við glasafrjóvganir, þ.e. þá kannski helst aldursmörk eða einhverjar félagslegar aðstæður og eins þá hvað varðar einhleypar konur.