Málefni sumarhúsaeigenda

22. fundur
Mánudaginn 31. október 1994, kl. 18:35:14 (975)


[18:35]
     Fyrirspyrjandi (Petrína Baldursdóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. félmrh. fyrir svör hans og fyrir að það er mjög jákvæður tónn hjá honum um það að leysa þessi mál. Ég held að það sé alveg ljóst, eftir því hvernig þessi mál hafa þróast, að það verður að taka á þessum málum og það verður að koma inn í það að sveitarfélögum sé skylt að skilgreina þá þjónustu sem þau eiga að veita í staðinn fyrir að taka gjöld af sumarhúsaeigendum. Það

er held ég alveg númer eitt svo að sumarhúsaeigendur viti að hverju þeir gangi og þessum málum sé komið í gott lag.