[13:50]
Elín R. Líndal :
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin og ég er ánægð með að það skuli vera unnið að málinu. Ég ítreka mikilvægi þess að lög og reglur komi fram sem fyrst. Innanlandsmarkaðurinn er og verður mikilvægasti markaðurinn og þarf að sinna honum af kostgæfni. En bestu sóknarfærin kunna að liggja í útflutningi takist þar vel til.