[13:55]
Umhverfisráðherra (Össur Skarphéðinsson) :
Virðulegi forseti. Hv. þm. Jóhannes Geir er stundum aftarlega á merinni en í þessu dæmi hefur hann gersamlega dottið aftan af henni vegna þess að hann þarf ekki að undrast það hér að eitthvert leynisamkomulag hafi verið gert. Þetta samkomulag var kynnt með fréttatilkynningu sem var send til allra fjölmiðla. Það var líka kynnt fyrir norðan þannig að ég vísa því algerlega á bug að hægt sé að kalla þetta eitthvert leynisamkomulag. Ekkert er óeðlilegt við það að minni hyggju að í svo viðkvæmu deilumáli sem þarna var uppi geri ráðherrann samkomulag um að beita sér fyrir málinu. Fyrrv. umhvrh. gerði það og mér er fullkomlega kunnugt um það vegna þess að ég var þá í iðnn. Alþingis og þar var þetta líka kynnt á sameiginlegum fundi iðnn. og umhvn. Ég hef eftir fremstu getu reynt að beita mér fyrir að þetta samkomulag verði haldið. Ég tel þetta alls ekki vond vinnubrögð eða ekki til eftirbreytni og segi það einungis að hv. þm. Jóhannes Geir ætti að fylgjast betur með fréttum til þess að koma ekki hérna þremur árum á eftir og spyrja um hvað hafi gerst fyrr á öldinni.