Endurnýjun starfsleyfis Kísiliðjunnar í Mývatnssveit

24. fundur
Miðvikudaginn 02. nóvember 1994, kl. 13:57:20 (1055)


[13:57]
     Jóhannes Geir Sigurgeirsson :
    Virðulegi forseti. Þó að ég sé ekki mikill hestamaður þá hygg ég að ég þurfi ekki að láta hæstv. umhvrh. kenna mér eitt né neitt varðandi það atriði. En ég ítreka spurningu mína til hæstv. umhvrh. sem hann veigraði sér við að svara og fór út í það eins og honum er lagið að fara þá frekar út í einhvers konar skæting. Hann svaraði því ekki hvort hann gerði sér grein fyrir því hvaða afleiðingar það gæti haft fyrir rekstur Kísiliðjunnar og það byggðarlag sem styðst við hana ef það væri lögfest á árinu 1994 að námaleyfi skyldi ekki framlengt. Ég vil biðja hæstv. ráðherra að svara þessari spurningu og íhuga það hvað þetta gæti í rauninni þýtt.