[15:18]
Jón Kristjánsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég vil aðeins láta það koma fram í þessari umræðu að það er alveg rétt að Vegagerð ríkisins í umboði samgrh. gerir tillögur í vegamálum og þær tillögur eru lagðar fyrir þingmenn kjördæmanna. En það hefur verið okkar hlutverk að fara yfir þær tillögur og leggja endanlega blessun okkar yfir þær og breyta til ef okkur hefur sýnst svo og þeirri samstöðu vil ég halda áfram.