Vegaframkvæmdir á Austurlandi

24. fundur
Miðvikudaginn 02. nóvember 1994, kl. 15:19:27 (1081)


[15:19]
     Flm. (Egill Jónsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Þeim misskilningi sem kom fram í ræðu hv. 2. þm. Austurl. í upphafi þessarar umræðu hefur væntanlega verið eytt. Hann hefur nú lýst því yfir að auðvitað hafi samgrh. forræði málsins og Vegagerðin vinnur það í hans umboði. Það er svo allt annað mál að það er náttúrlega hverjum degi ljósara þó að það sé ekki sérstaklega tekið fram, að um slíkan tillöguflutning er fjallað miklu víðar en bara í samgrn., m.a. af þingmönnum í viðkomandi kjördæmi, þessu tilviki Austurlandskjördæmi. Ég sé því ekki betur en þessari umvöndun hv. 2. þm. Austurl. hafi hann eytt sjálfur.