Vegaframkvæmdir á Austurlandi

24. fundur
Miðvikudaginn 02. nóvember 1994, kl. 15:25:40 (1085)


[15:25]
     Flm. (Egill Jónsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 3. þm. Vesturl. fyrir þessa umræðu. Í fyrri ræðu sinni komst hann að þeirri niðurstöðu að það hlytu að vera tvær ástæður fyrir því að ég flytti þessa tillögu. Önnur sú að þetta væri sýndarmennska, hin sú að ég hefði orðið undir í einhverjum átökum. Nú hefur hann nefnt þriðju ástæðuna og um hana er ég honum alveg sammála, að þetta væri sú leið sem ég hefði valið til þess að ná árangri í vegagerð á Austurlandi. Þetta er hárrétt og ég er þakklátur fyrir það að hv. þm. skuli hafa komið hér upp og upplýst málið að þessu leyti.