[10:55]
Páll Pétursson (andsvar) :
Frú forseti. Ég var alls ekki að halda því fram að hv. þm. væri að forsvara þessi viðskipti, ég var hins vegar að vekja athygli á því að hann notaði orðið ,,keypt`` sem mér finnst vera mikið upp í sig tekið um viðskipti eins og þarna fóru fram og hlutur Búnaðarbankans í málinu er náttúrlega sérstakt rannsóknarefni.