Jarðalög

25. fundur
Fimmtudaginn 03. nóvember 1994, kl. 16:38:15 (1165)


[16:38]
     Guðrún Helgadóttir (um fundarstjórn) :
    Hæstv. forseti. Hér hafa orðið smámistök hygg ég. Það hafði verið fallist á að hv. 4. þm. Austurl. fengi frestun á umræðu í þessu máli þar sem hann þurfti að fara utan með vél nú kl. 5 en verður hér á mánudaginn og ég ræddi þetta við þingforseta, frú Salome

Þorkelsdóttur. Hún hafði ekki á móti því að svo yrði gert og ég hélt að ég hefði komið þessum skilaboðum til skila og vil biðja forseta að endurskoða þessa ákvörðun sína.