Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
Borist hefur svohljóðandi bréf, dags. 4. nóv. 1994:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda til setu á þingi Sameinuðu þjóðanna og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþingmaður Sjálfstfl. í Reykjaneskjördæmi, María E. Ingvadóttir viðskiptafræðingur, Seltjarnarnesi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni. Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
María E. Ingvadóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.
Þá hefur borist annað bréf, dags. 4. nóv. 1994:
,,Þar sem ég er á förum til setu á þingi Sameinuðu þjóðanna og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísan til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varaþingmaður Sjálfstfl. í Vesturlandi, Elínbjörg Magnúsdóttir fiskvinnslukona, Akranesi, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni. Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegur forseti.
Elínbjörg Magnúsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.