Skattfrelsi leigutekna af íbúðarhúsnæði

27. fundur
Mánudaginn 07. nóvember 1994, kl. 16:56:07 (1238)


[16:56]
     Fyrirspyrjandi (Kristinn H. Gunnarsson) :
    Virðulegi forseti. Við þetta er litlu að bæta. Það kom fram í máli hæstv. ráðherra að það er verið að vinna að því að efna þessa yfirlýsingu og stefnt að því að frv. þar um verði lagt fram í næstu viku. Ég tel því enga ástæðu til annars en ætla að ríkisstjórnin muni standa við þetta fyrirheit og að Alþingi muni síðan afgreiða og lögfesta frv. fyrir næstu áramót.