Framkvæmdir í samgöngumálum í kjölfar sameiningar sveitarfélaga

27. fundur
Mánudaginn 07. nóvember 1994, kl. 18:18:09 (1279)


[18:18]
     Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) :
    Herra forseti. Ætli ég sé ekki bara farinn að kalka. Einhvern veginn rámar mig samt í það að fyrir hafi komið að Einar Olgeirsson hafi í þessum þingsal verið kallaður ritstjóri Réttar. Einhvern tíma var Þórarinn Þórarinsson kallaður ritstjóri Tímans og Eykon ritstjóri Morgunblaðsins. Ég held að þetta sé ekki

nýtt í þingsögunni, það held ég ekki. Ég held að þetta hafi viðgengist svo að áratugum skiptir.