Grunnskóli

29. fundur
Þriðjudaginn 08. nóvember 1994, kl. 14:54:12 (1310)


[14:54]
     Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég hef talið að réttur nemenda sé ekkert síður tryggður samkvæmt þessum nýju málsgreinum í frv. en er í gildandi lögum. En ég vil taka það skýrt fram að ef menn telja að svo sé ekki þá verði það athugað alveg sérstaklega í hv. menntmn. vegna þess að ég er alveg sannfærður um að við hv. þm. erum allir sammála um að þessi atriði þurfi að tryggja.